8. - 9. júní 2024

Á sveimi í Snæfellsjökulsþjóðgarði
tjaldferð - jógaganga (kvennaferð)

  • Njóttu þess að dvelja í náttúrunni

  • Finndu að þú býrð yfir nægum styrk

  • upplifðu kyrrðina úti og dveldu í innri kyrrð

  • komdu út fyrir boxið eina helgi með litlum hópi kvenna

Kvennaferð þar sem gengið er með tjald og annan búnað til tveggja daga inn í friðsæld Snæfellsjökulsþjóðgarðs. Ferðin er farin til að njóta náttúrunnar, leiða hugann inná við með jógaiðkun og til að upplifa og reyna á eigin kraft og styrk. Gengin vegalengd er því ekki fastsett heldur fjöldi klukkustunda á ferð hvorn daginn.

Farið er á eigin bílum að upphafsstað göngunnar og hefst gangan innan þjóðgarðsins kl. 11 á laugardagsmorgni. Gengið er að hluta til hringleið og að hluta til fram og til baka á tveimur dögum og tjaldað á leiðinni. Njótum náttúrunnar, kyrrðarinnar, áreynslunnar, slökunarinnar og samverunnar. Komið er aftur að bílunum um kl. 16 á sunnudeginum. Þátttakendur fá góðan búnaðarlista, leiðbeiningar um pökkun og hugmyndir að hentugu nesti.

Á göngunni eru teknar pásum á hefðbundnum matar og kaffitímum. Einnig eru teknar pásur fyrir jóga sem er ýmist öndunaræfingar, hugleiðslur, jógastöður eða annað. Það fer eftir veðri hvort jóga er gert í færri og lengri lotum eða í fleiri styttri pásum. Ferðin er hvorki kappganga þar sem er gengið til að ná tímamörkum og heldur ekki sérstök hægganga. Bæði verður gengið sama í hóp og spjallað og einnig gefið svigrúm í ferðinni til að ganga ein í þögninni og með lengra bil á milli.

Tilgangur

Hvað kemur svona ferð, starfsferlinum við? Jú hún eflir þor og hugrekki. Gefur næðitíma fyrir eigin hugsanir og nærandi samveru í friði. Hvort tveggja er mikilvægt fyrir þín næstu skref. Gefur orku til að halda orkunni uppi fyrir hversdagslegt amstur í lífi og starfi. Gefur hugrekki og umhugsun fyrir breytingar sem þú vilt kannski eða þarft að gera. Þar fyrir utan er dvöl í faðmi náttúru heilandi og eflandi eins og fjölmargar rannsóknir hafa sýnt. Sem sagt allt þættir sem gagnast vel á þinni leið á starfsferlinum.

Erfiðleikastig

Gönguhraðinn fer að hluta til eftir veðri, hópi og göngusvæði. Dvalið er lengur eða skemur í pásum eftir hvað hentar út frá veðri og hópnum. Einnig passað upp á að fara hægar upp brekkur og halda hópnum nokkuð vel saman. Má því gera ráð fyrir að gönguhraðinn verði stundum 2,0 km/klst og upp í 4,5 km/klst. Nauðsynlegt er þó að vera í ágætu gönguformi og geta borið nauðsynlegan búnað.

Viðmið um getustig fyrir þessa ferð er að vera fær um að ganga 12 km á einum degi með bakpoka (með pásum) og að vera fær um að ganga 10 km á malbiki á um það bil 130 mínútum án byrgða.
Neðri aldurstakmark er 18 ára en efri aldurstakmark er ekkert. Meðalaldurinn í þessar ferðir hefur verið um 45-55 ára og hækkar vonandi :)

Dagur 1:

Gangan hefst hjá einni gestastofu þjóðgarðsins kl. 11 á laugardagsmorgni (nánari útlistun til þátttakenda). Gengið er eftir gönguslóðum og gönguleiðum ýmist í hrauni og/eða meðfram sjónum. Fáfarið er á svæðunum sem er gegnið um fyrir utan þekktari áningarstaði eins og Djúpalónssand og Lóndranga. Síðdegis er tjaldað á hentugum tjaldstað þar sem er vatn (og með leyfi þjóðgarðsins) og fjarri alfaraleið. Á leiðinni er jóga og einnig um kvöldið hjá tjöldunum.

Ferðatími dagsins: 6 - 7 klst. með pásum. Búast má við göngu á bilinu 10 - 12 km. Lítil hæðabreyting eða á bilinu 10 - 40 metrar í einu.

Dagur 2:

Morguninn hefst á morgunjóga og hugleiðslu fyrir morgunmat. Að honum loknum eru tjöldin tekin saman og gengið af stað upp úr kl. 9. Gengið er áleiðis til baka að bílunum en ekki alveg sama leið. Leiðin liggur framhjá ströndinni á kaflum með brimið og einstakar klettamyndir og um vel gróið svæði. Gert er ráð fyrir að koma að bílunum um kl. 16 og í síðasta lagi kl. 17.

Ferðatími dagsins: um 7 klst. með pásum (búast má við göngu á bilinu 10 - 12 km.). Lítil hæðabreyting.

Farangur:

Bakpoki, Tjald, svefnpoki, dýna, útivistarklæðnaður, eldunarbúnaður, áhöld og matur

Nestismagnið er eftirfarandi en þátttakendur fá nánari lista.

Morgunmatur 1x
Hádegismatur 2x
Síðdegishressing 2x
Kvöldmatur 1x
Kvöldhressing 1x
orkunasl á milli ef þarf

Gengið er með allan farangur á bakinu en með lagni ætti að vera hægt að sleppa með 6 - 9 kg. Hægt væri til dæmis að sameinast um eldunaráhöld eða tjald.

Hægt að létta byrðir: Í þessari ferð er hægt að koma hlutum þannig fyrir að einungis þarf að bera tjald og tilheyrandi búnað hluta leiðarinnar eða 2-3 km. hvorn daginn. Þetta er því gott tækifæri til að fara í tjaldferð með allt á bakinu, án þess að bera mikið alla leiðina.

Kynningarfundur verður í maí.

skráning:

Verð

22.000 kr.
Innifalið: Leiðsögn, jóga, undirbúningsfundur með leiðbeiningum um búnað og pökkun, gátlistar, gjöld og skattar. Þátttakendur koma á eigin bílum en hvatt til að sameinast verði í bíla.

Lágmark 6 og hámark um 12 verða í ferðinni.

Staðfestingargjald 5.000 er greitt í byrjun apríl og fullgreiða svo ferðina 2 vikum fyrir ferð.

Nánari upplýsingar í síma 899 8588 eða netfangið hronn@thinleid.is

Uppfært í apríl 2024